Archive for mars, 2007

Skeit í mark

mars 31, 2007

Ég var rétt í þessu að skipta um bleyju á Dísinni þegar hún hnerraði svo hressilega að skítur þeyttist út um allt. Ég kláraði að skipta um bleyju og skipti svo um skyrtu.

Dís gretti sig og ældi

mars 31, 2007

Algengur ósiður foreldra ungbarna er sá að segja eitthvað við barnið sem ætlað er öðrum viðstöddum. Til dæmis gæti ég sagt við Dís: “Heyrðu Dís, mikið væri nú fínt ef mamma þín færi í ísskápinn og næði í bjór handa pabba þínum.” Oftast eru svona skilaboð þó rætnari, til dæmis: “Úúú Dísin mín, ferlega er mamma þín úfin, úldin og úrill í dag.” Ef maður hefur eitthvað að segja við nærstadda, á maður að segja það við þá beint og milliliðalaust.

Skyldur ósiður er að gera ungbörnum upp skoðanir. Ungbörn hafa í raun ekki nema tvær skoðanir: “mjólk er góð” og “að láta klæða sig í er vont”. Sem dæmi um þennan ósið gæti ég sagt við Söndru: “Verum bara heima elskan, Dís finnst ekkert gaman að heimsækja ömmu sína” þegar málið er að ég nenni ekki í heimsókn til tengdó. Þessi ósiður er ekki endilega bundinn ungbörnum, en það er önnur saga.

Á þessu eru auðvitað undantekningar. Ég spurði Dís hvað henni finnist um stækkun álversins í Straumsvík, Alcan og stóriðjustefnuna yfirleitt. Dís gretti sig og ældi.

Konungleg Dís

mars 30, 2007

Ég kíkti í Íslendingabók og rakti þar ættir Dísar alla leið aftur til Kjarvals Írakonungs (Cerball mac Dúnlainge, King of Osraige), Ólafs hvíta Ingjaldssonar konungs af Dyflini (Amlaíb Conung), sonar hans Þorsteins rauða Ólafssonar Skotakonungs (Thorstein the Red) og síðast en ekki síst Ósvalds helga Englakonungs (Saint Oswald of Northumbria). Reyndar mun Ósvaldur helgi hafa látist 6. ágúst árið 642, en dóttir hans Vilborg á að hafa fæðst um 860. Sagnfræðingar hljóta að hafa rangt fyrir sér, ekki ljúga Íslendingasögurnar og því síður Íslendingabók …

Nýbakaðir foreldrar missa tveggja mánaða svefn

mars 30, 2007

Ég sest niður við tölvuna illa sofinn, með stírurnar í augunum og Dís sofandi á öxlinni, og les þá þessa frétt á vísi punktur is. Samkvæmt könnun sem ungbarnavöruframleiðandinn Tomy lét gera, segist þriðjungur nýbakaðra foreldra missa 90 mínútur úr svefni á nóttu. Þessi frétt birtist upphaflega á BBC News. Við Sandra föllum í þennan hóp, nema þegar okkur tekst að sofa fram eftir morgni til að bæta upp svefnmissi næturinnar. Þegar það er ekki hægt, þá bjargar þrefaldur espressó því sem bjargað verður.

Karlmannlegir feður

mars 30, 2007

Sandra fór í dag með Dísina í heimsókn til langömmu og ömmu sinnar. Á meðan kom Stefán í heimsókn til mín með fimm mánaða dóttur sína, Emiliu. Við karlmennirnir settumst niður með bjór og töluðum saman um brjóstagjöf, bleyjur og svefnvenjur ungbarna.

Einsöngur í barnavagni

mars 28, 2007

Mig er farið að gruna að barnið geri sér leik að því að halda í sér þangað til við skiptum um bleyju, því um leið og bleyjan er farin og áður en ný er komin notar stelpan tækifærið og sprænar út um allan bleyjubekkinn. Ég veit þetta gæti verið verra.

Í dag er enn sól og blíða og við þrjú fórum út að borða í hádeginu með Ríku. Hér í nágrenninu er ítalskur veitingastaður sem hefur borð og bekki utandyra. Um leið og maturinn kom á borðið upphófst mikill einsöngur í barnavagninum, öðrum gestum til ánægju og yndisauka. Það er enn spurning með snuðið …

Snuð eða ekki snuð

mars 27, 2007

Við vorum varla sest til að borða hádegismatinn í dag þegar Dís byrjaði að grenja í vöggunni. Henni virðist líka sérstaklega illa að liggja í vöggunni á matmálstímum, þótt hún sé nýbúin að fá sinn mat. Sandra vill sjóða handa henni snuðið sem var ásamt bleyjudalli, upplýsingaefni, auglýsingabæklingum og öðru góðu í gjafapakkanum frá sjúkrahúsinu. Ég vil ekki gefast upp alveg strax, enda með afbrigðum þrjóskur. Snuð eða ekki snuð …

Dís í sól og sumaryl

mars 26, 2007

Ljósmóðirin kom í morgun og var mjög ánægð með Dísina. Hún hafði þyngst um ríflega 100g á þrem dögum (ég hef nú samt gert betur), þannig að tunguhaftið virðist hafa eitthvað háð henni. Við Sandra fórum með Dís á bæjarskrifstofuna (Standesamt) og sóttum fæðingarvottorð í sjö útgáfum. Það eru mismunandi útgáfur eftir því hver tilgangurinn er með vottorðinu. Þannig er sérvottorð til að fá mæðrapening, annað fyrir vinnuveitanda o.s.frv. Dís svaf vært í vagninum þangað til við vorum hálfnuð heim. Þá vaknaði hún og uppgötvaði að hún var svöng. Hún tók til við að orga af lífs og sálar kröftum þangað til hún var komin heim og á brjóst. Eftir að hafa fengið mjólkurskammtinn sinn svaf Dís allan eftirmiðdaginn á svölunum. Það var sól og 20 stiga hiti, góður dagur til að hanga út á svölum.

Sunnudagur til sælu

mars 25, 2007

Foreldrar Söndru komu til okkar og við fórum í göngutúr í gegnum Hallargarðinn og niður að Rín. Sólin skein og það var nógu hlýtt til að sitja úti. Engar kýr voru á svæðinu, en þær hefðu eflaust leikið við hvurn sinn fingur. Múgur og margmenni hafði safnast saman á bökkum Rínar til að njóta blíðunnar. Við vorum heppin að fá borð í sólinni og eftir nokkra bið fengum við kaffi, te og bjór að drekka. Dísin svaf í svarta tryllitækinu sínu allan tímann. Við Sandra fórum síðan með Dís heim þar sem hún fékk sína mjólk að drekka. Um kvöldmatarleytið fórum við út að borða með foreldrum Söndru. Þetta var í annað skipti sem við fórum með Dís á veitingastað og eins og í fyrsta skiptið steinsvaf hún í vagninum. Það er lítið mál að fara út að borða með stelpuna meðan hún sefur svona mikið, svo framarlega sem veitingastaðurinn hefur nóg pláss fyrir barnavagn og ekki er of mikið reykt.

Tunguhaft

mars 25, 2007

Þegar við fórum með Dísina í U2 (2. ungbarnaskoðun) um daginn spurði ég barnalækninn, unga konu, um tunguhaftið, sem okkur Söndru sýndist vera heldur stutt. Barnalæknirinn sagði að það væri stutt, en hún sjálf klippi ekki á tunguhaft í börnum. Hins vegar komi pabbi hennar annað slagið við og hann geti gert það. Sem betur fer er sá gamli líka barnalæknir, hann er kominn á eftirlaun en kemur samt reglulega á stofuna. Við ákváðum að sjá til. Sama dag kom ljósmóðirin til okkar og kvartaði undan að krakkinn hefði ekki þyngst. Hún skipaði Söndru að panta strax tíma hjá gamla manninum til að láta skera á tunguhaftið, því stutt tunguhaft gæti valdið því að barnið drekki ekki nóg. Tungan er þá ekki nógu skilvirk. Við fórum í gær með Dísina til gamla barnalæknisins sem var snöggur að skera á tunguhaftið. Það kom líka upp úr dúrnum að fyrir 30 árum hafði hann verið barnalæknir vinkonu okkar, Ríku, sem er af japönskum ættum. Hann mundi eftir því að Ríka hafði látið hann fá lista af sjúkdómum á japönsku, til að auðvelda samskipti við japanska foreldra. Listinn hafði komið að góðu gagni, japönsku foreldrarnir sögðu “hæ!” og kinkuðu ákaft kolli. Sandra segir að Dísin drekki mun betur núna, en það kemur í ljós á morgun hvort hún er farin að þyngjast aftur.