Ég kíkti í Íslendingabók og rakti þar ættir Dísar alla leið aftur til Kjarvals Írakonungs (Cerball mac Dúnlainge, King of Osraige), Ólafs hvíta Ingjaldssonar konungs af Dyflini (Amlaíb Conung), sonar hans Þorsteins rauða Ólafssonar Skotakonungs (Thorstein the Red) og síðast en ekki síst Ósvalds helga Englakonungs (Saint Oswald of Northumbria). Reyndar mun Ósvaldur helgi hafa látist 6. ágúst árið 642, en dóttir hans Vilborg á að hafa fæðst um 860. Sagnfræðingar hljóta að hafa rangt fyrir sér, ekki ljúga Íslendingasögurnar og því síður Íslendingabók …
Archive for mars 30th, 2007
Konungleg Dís
mars 30, 2007Nýbakaðir foreldrar missa tveggja mánaða svefn
mars 30, 2007Ég sest niður við tölvuna illa sofinn, með stírurnar í augunum og Dís sofandi á öxlinni, og les þá þessa frétt á vísi punktur is. Samkvæmt könnun sem ungbarnavöruframleiðandinn Tomy lét gera, segist þriðjungur nýbakaðra foreldra missa 90 mínútur úr svefni á nóttu. Þessi frétt birtist upphaflega á BBC News. Við Sandra föllum í þennan hóp, nema þegar okkur tekst að sofa fram eftir morgni til að bæta upp svefnmissi næturinnar. Þegar það er ekki hægt, þá bjargar þrefaldur espressó því sem bjargað verður.
Karlmannlegir feður
mars 30, 2007Sandra fór í dag með Dísina í heimsókn til langömmu og ömmu sinnar. Á meðan kom Stefán í heimsókn til mín með fimm mánaða dóttur sína, Emiliu. Við karlmennirnir settumst niður með bjór og töluðum saman um brjóstagjöf, bleyjur og svefnvenjur ungbarna.








