Archive for apríl, 2007

Þitt fyrsta bros …

apríl 30, 2007

Í morgun brosti Dís í fyrsta skipti breiðu, stöðugu og óumdeilanlegu brosi. Hún hafði aðeins æft það um daginn á Ásu ömmu sinni, en nú birtist það í fyrsta skipti í fullri lengd.

Hvíldardagurinn haldinn heilagur

apríl 30, 2007

Sunnudagurinn var mjög rólegur hjá okkur. Við fórum í síðbúinn morgunmat til Renötu, Stefáns og Emilíu. Það eru eflaust eitt til tvö ár þangað til þær Emilía og Dís geta farið að leika sér saman, en þær horfðu forvitnum augum hvor á aðra. Emilía er fimm mánuðum eldri en Dís. Eftir matinn gengum við tvær litlar fjölskyldur í Hallargarðinn og settumst þar á teppi í sólinni. Allir fengu eitthvað gott að drekka. Það var ekki eins heitt og síðustu daga, hitinn var rétt um 23 stig og dálítil gola, en mjög þægilegt í sólinni. Í gamla bænum fengum við okkur ís þrátt fyrir langa biðröð í ísbúðinni, og áður en við héldum heim á leið var skálað fyrir vel heppnuðum sunnudegi á Uerige.

Nú er ég loks búinn að setja inn myndir frá því mamma var í heimsókn, þar eru í bland myndir sem mamma tók og myndir sem við Sandra tókum.

Afmæli

apríl 28, 2007

Ása Dísaramma á afmæli í dag. Dís og foreldrarnir óska henni til hamingju með daginn!

Barnarúm

apríl 28, 2007

Ég kom heim frá Manchester seint á í gærkvöldi (fimmtudagskvöld, öllu heldur aðfaranótt föstudags), og þær mæðgur sváfu vært. Um nóttina vaknaði ég tvisvar og hélt á Dís og reyndi að fá hana til að ropa hressilega fyrir mig, skipti einu sinni um bleyju sem var yfirfull af fljótandi ungbarnadrullu, og gekk eitthvað um með hana (Dís, ekki drulluna). Ég veit ekkert hvenær þetta var allt saman, ég var hálfsofandi sjálfur, nema að upp úr hálfátta um morguninn var ég svo sestur við tölvuna með Dís á öxlinni.

Við Sandra fórum í dag og litum á barnarúm sem við ætlum að kaupa. Við áttum að sækja það síðdegis, en það hafði eitthvað tekist illa til við að taka það í sundur fyrir okkur. Þegar ég kom til að sækja rúmið sátu tvær miðaldra konur á búðargólfinu og reyndu að líma rimla við kantana sem koma að ofan og neðan og mynda hliðina í rúminu. Þetta leit ekki vel út og ég sagði að ég myndi koma á morgun og sækja rúmið. Vonandi verður það ekki útatað í trélími.

Þessa dagana er vel heitt hér í Düsseldorf, rétt tæp 30 stig og sól. Dís kann vel við að liggja fáklædd í sumarhitanum, en við Sandra erum í svitabaði — og það er bara apríl …

Dormitor II

apríl 23, 2007

Dís hefur sofið í mest allan dag, enda höfum við verið mikið á ferðinni. Við litla fjölskyldan og Ása Dísaramma fórum í bröns á kaffihús í hádeginu og gengum síðan lengi í sól og 23 stiga hita eftir og yfir Rín. Við fengum okkur kaffi og köku heima og síðan pítsu í bænum. Yfir daginn vaknaði Dís til að fá hálfan mjólkurskammt á tveggja tíma fresti og steinsvaf þess á milli. Hún hefur hins vegar verið vakandi í kvöld og gubbar yfir hvern þann sem kemur nærri henni. Hún verður líklega spræk í nótt. Við höfum tekið fullt af myndum, en ég efast um að mér gefist tími til að koma þeim á netið fyrr en um næstu helgi.

Uerige og Rósagarðurinn

apríl 21, 2007

Við Sandra og mamma fórum út í dag með Dís. Það var kalt í morgun en hefur aðeins hlýnað í sólinni síðdegis. Við tókum strikið á Uerige og fengum okkur bjór. Við skáluðum sérstaklega fyrir Hafdísi Dísarfrænku. Eftir stutta stund vildi Dís líka fá eitthvað að drekka. Sandra fór með hana í Rósagarðinn til að fá frið til að gefa henni. Við mamma fylgdum á eftir skömmu síðar. Það var notalegt að sitja í kvöldsól og fuglasöng í Rósagarðinum.

Afsakið hlé

apríl 20, 2007

Nú hefur orðið nokkuð hlé á bloggfærslum vegna vinnuskrepps til Manchester. Mér fannst Dís hafa stækkað og þroskast heilmikið á þessum fáu dögum sem ég var í burtu. Hún er meira vakandi og lítur meira í kringum sig. Dís fór í U3 (þriðju ungbarnaskoðun) á miðvikudaginn. Hún er orðin 54 sentímetrar og hefur þyngst vel. Allt er í besta lagi. Hún er með nokkuð miklar ungbarnabólur, en það er víst eðlilegt og á að lagast á næstu vikum. Nú erum við að velta fyrir okkur hvað við gerum í bólusetningum (alls óskylt ungbarnabólum), en meira um það síðar.

Dís í djúpum skít

apríl 15, 2007

Ég var nýbúinn að skipta um bleyju á Dís þegar kom í ljós að hún var búin að skíta langt upp á bak. Tímasetningin var auðvitað óaðfinnanleg, því við vorum rétt sest niður við síðbúinn morgunverð. Ég fór með Dís inn á bað, klæddi hana úr öllu og þreif hana í bak og fyrir. Bleyjan var svo full af skít að útúr fló. Þetta kom töluvert á óvart eftir allan skítinn í gær.

Uppgjöf

apríl 14, 2007

Snuðið var formlega tekið í notkun í dag. Dís var óróleg í nótt og vakandi mest allan daginn. Hún orgaði mikið ef ekki var boðið upp á stöðug skemmtiatriði eins og “gengið um með Dís” eða fingur til að sjúga. Konurnar á heimilinu notuðu tækifærið á meðan ég var að kaupa í matinn og drógu fram snuðið. Það virðist duga ágætlega.

Annars hefur þetta verið viðburðaríkur dagur í lífi Dísarinnar. Siðdegis lá hún fáklædd út á svölum í skugga, mælirinn sýndi mest 28 gráður. Hún virðist nokkuð ánægð með sól og hita, að minnsta kosti hita því hún fær ekki að vera mikið í sólinni. Í kvöld fór Dís út að borða með foreldrum sínum, báðum ömmum sínum og Jürgen afa. Við sátum úti og hún svaf vært í vagninum þangað til hljómsveit eldri borgara setti upp mikil orgel og bumbur á næsta götuhorni og hóf að framleiða gríðarlegan hávaða. Dís vaknaði og lýsti skoðun sinni á tónlistinni með miklu orgi. Hún jafnaði sig ekki fyrr en hún var tekin afsíðis og gefið að drekka.

Og fyrir þá sem vilja fylgjast með skítnum: Dís er búin að gera í þrjár bleyjur í dag, sem er mikil breyting eftir drulluleysi síðustu daga.

Ása og Dís og allar gjafirnar

apríl 13, 2007

Dís

Dís var mjög óróleg í vöggunni eftir matinn í gær, en um leið og hún var komin í fangið á ömmu sinni var hún aftur ánægð með lífið og tilveruna. Dís á greinilega góða að, því Ása amma hennar kom hlaðin dýrindis gjöfum. Það er engin hætta á að Dísin verði klæðalaus næstu mánuði og ár. Dís er orðlaus, en foreldrar hennar senda þúsund þakkir til Dísu frænku, Emmu langömmu, Viðars frænda og fjölskyldna hans, og Svanhildar frænku.