Archive for apríl 1st, 2007

Samkvæmt læknisráði

apríl 1, 2007

alt

Við fórum út með Dís að kíkja í búð og rákumst þá á Renötu sem var í sömu erindagjörðum með Emiliu. Við fengum okkur kringlur (Bretzel) og ákváðum að slökkva þorstann með bjór á Uerige í gamla bænum. Barnalæknirinn gamli sem klippti á tunguhaft Dísar ráðlagði Söndru nefnilega að fá sér eitt bjórglas á kvöldin til að styrkja mjólkurframleiðsluna. Stefán bættist svo í hópinn á eldgömlu reiðhjóli sem systir hans hafði fundið. Við fengum okkur bjór en dvöldum ekki lengi því Dís vaknaði og vildi fá sína mjólk. Við héldum heim á leið með org í vagni.