Ljósmóðirin okkar kom í dag og leit á Dísina. Hún var mjög ánægð með hvað Dís hefur þyngst síðan síðast. Hún var líka ánægð með hana að öðru leyti og sagði að við hefðum fengið algjört byrjendabarn. Hún reyndi svo að fá bros út úr Dís, en það tókst ekki. Börn byrja víst að brosa í 4. til 6. viku og nú er komin sú fimmta. Dís fer eflaust að brosa þegar hún sér Ásu ömmu sína sem kemur á morgun!
Archive for apríl 11th, 2007
Ef þú smælar framan í heiminn …
apríl 11, 2007Lóna-tsjan
apríl 11, 2007Í kvöld fengum við þrjár japanskar vinkonur Söndru í heimsókn, Norí, Júkíe og Ríka. Þær voru óskaplega hrifnar af Dísinni, kölluðu hana Lóna-tsjan. Ég hef áhyggjur af því að ef þær koma reglulega í heimsók muni Dís tala betur japönsku en íslensku þegar frá líður. Sandra benti mér líka á að mun fleiri tala japönsku en íslensku hér í hverfinu okkar, við búum nefnilega í stærsta japanska hverfinu í Evrópu.








