Við Sandra og mamma fórum út í dag með Dís. Það var kalt í morgun en hefur aðeins hlýnað í sólinni síðdegis. Við tókum strikið á Uerige og fengum okkur bjór. Við skáluðum sérstaklega fyrir Hafdísi Dísarfrænku. Eftir stutta stund vildi Dís líka fá eitthvað að drekka. Sandra fór með hana í Rósagarðinn til að fá frið til að gefa henni. Við mamma fylgdum á eftir skömmu síðar. Það var notalegt að sitja í kvöldsól og fuglasöng í Rósagarðinum.









apríl 22, 2007 kl. 3:49 pm
Til hamingju með Lónu Sophiu Dís.
Mig langar mjög mikið að sjá hana.
apríl 23, 2007 kl. 12:48 am
Takk Sunna, við sjáumst í sumar!