Ása Dísaramma á afmæli í dag. Dís og foreldrarnir óska henni til hamingju með daginn!
Archive for apríl 28th, 2007
Afmæli
apríl 28, 2007Barnarúm
apríl 28, 2007Ég kom heim frá Manchester seint á í gærkvöldi (fimmtudagskvöld, öllu heldur aðfaranótt föstudags), og þær mæðgur sváfu vært. Um nóttina vaknaði ég tvisvar og hélt á Dís og reyndi að fá hana til að ropa hressilega fyrir mig, skipti einu sinni um bleyju sem var yfirfull af fljótandi ungbarnadrullu, og gekk eitthvað um með hana (Dís, ekki drulluna). Ég veit ekkert hvenær þetta var allt saman, ég var hálfsofandi sjálfur, nema að upp úr hálfátta um morguninn var ég svo sestur við tölvuna með Dís á öxlinni.
Við Sandra fórum í dag og litum á barnarúm sem við ætlum að kaupa. Við áttum að sækja það síðdegis, en það hafði eitthvað tekist illa til við að taka það í sundur fyrir okkur. Þegar ég kom til að sækja rúmið sátu tvær miðaldra konur á búðargólfinu og reyndu að líma rimla við kantana sem koma að ofan og neðan og mynda hliðina í rúminu. Þetta leit ekki vel út og ég sagði að ég myndi koma á morgun og sækja rúmið. Vonandi verður það ekki útatað í trélími.
Þessa dagana er vel heitt hér í Düsseldorf, rétt tæp 30 stig og sól. Dís kann vel við að liggja fáklædd í sumarhitanum, en við Sandra erum í svitabaði — og það er bara apríl …








