Archive for apríl, 2007

Afmælisbjór

apríl 13, 2007

Dís

Með gúllassúpunni í gærkvöldi drukkum við Schumacher alt bjór, sem settur var á flösku daginn sem Dís fæddist. Í gær átti Dís nefnilega eins mánaðar afmæli.

Ása amma komin

apríl 12, 2007

Ása Dísaramma er komin frá Íslandi. Dísin tók vel á móti henni, horfði að vísu fyrst á hana gagnrýnum augum og hleypti í brýrnar en eftir kvöldverðinn svaf hún alsæl í fanginu á ömmu sinni.

Ef þú smælar framan í heiminn …

apríl 11, 2007

Ljósmóðirin okkar kom í dag og leit á Dísina. Hún var mjög ánægð með hvað Dís hefur þyngst síðan síðast. Hún var líka ánægð með hana að öðru leyti og sagði að við hefðum fengið algjört byrjendabarn. Hún reyndi svo að fá bros út úr Dís, en það tókst ekki. Börn byrja víst að brosa í 4. til 6. viku og nú er komin sú fimmta. Dís fer eflaust að brosa þegar hún sér Ásu ömmu sína sem kemur á morgun!

Lóna-tsjan

apríl 11, 2007

Dís

Í kvöld fengum við þrjár japanskar vinkonur Söndru í heimsókn, Norí, Júkíe og Ríka. Þær voru óskaplega hrifnar af Dísinni, kölluðu hana Lóna-tsjan. Ég hef áhyggjur af því að ef þær koma reglulega í heimsók muni Dís tala betur japönsku en íslensku þegar frá líður. Sandra benti mér líka á að mun fleiri tala japönsku en íslensku hér í hverfinu okkar, við búum nefnilega í stærsta japanska hverfinu í Evrópu.

Snuð

apríl 9, 2007

snuð
Í dag suðum við bæði snuðin sem sjúkrahúsið gaf okkur og prófuðum þau svo á Dísinni. Fyrra snuðinu var skilað um leið, en seinna snuðið fékk mun betri móttökur. Við prófuðum þá fyrra snuðið aftur og þá var það líka í lagi. Að prófun lokinni voru snuðin sett í geymslu, þau verða einungis notuð í neyð …

Gleðilega páska!

apríl 8, 2007

Dísin og foreldrar hennar óska öllum ættingjum og vinum nær og fjær (sérstaklega fjær) gleðilegra páska!
Dís hélt upp á daginn með því að gubba mjólk í fyrsta skipti út um nefið.

Dormitor deluxe

apríl 7, 2007

Dís

Það var engu ofaukið í því sem ég skrifaði í gær um svefnpurkulyndi fjölskyldunnar. Þegar ég skreið í bælið um miðnættið voru þær mæðgur sofandi. Þegar ég svo reis úr rekkju um hálftíu voru þær ennþá sofandi. Reyndar hafði Dís fengið að drekka um klukkan þrjú og átta, en samt.

Gubb og piss

apríl 7, 2007

Daglegt líf lítils barns er ekki mjög flókið. Mögulegar athafnir ungbarnsins eru nefnilega ekki nema fjórar: drekka, sofa, grenja og gera í bleyjuna. Nei, fimm, ég gleymdi mjólkurgubbinu. Ég hef aldrei skilið hvernig foreldrar ungbarna geta talað út í eitt um krakkann, mér finnst þessar fimm athafnir alla veganna fremur takmarkað umtalsefni og nánast út í hött að tileinka því næstum daglegt blogg. En semsagt: Ég var að skipta á Dísinni rétt áðan fyrir nóttina. Ég var búinn að taka af henni bleyjuna og þrífa bossann, og var að teygja hendina í nýja bleyju þegar hún tekur til við að spræna yfir allan bleyjubekkinn. Ég hendi nýju bleyjunni undir hana og reyni að þurrka upp pissið eftir megni. Þá gubbar stúlkan mjólk yfir svefngallann sinn, sem lá mjög vel við gubbi því neðri hlutinn af honum lá upp við andlitið eins og venjulega þegar skipt er um bleyju. Ég mátti þá klæða Dís úr útgubbuðum svefngallanum og pissublautum nærgallanum og nýju bleyjunni og byrja upp á nýtt með Dís sem er farin að orga af öllum lífs og sálar kröftum yfir því að vera ekki komin aftur á brjóst eða í draumalandið. Sem betur fer er krakkinn algjör svefnpurka og sefur nánast alla nóttina og langt fram eftir morgni. Að því leyti að minnsta kosti líkist stúlkan foreldrum sínum.

Þrumuveður í bleyjunni

apríl 5, 2007

Dís hefur verið kvartandi og kveinandi í allan dag. Sandra skipti tvisvar um bleyju á henni fyrr í dag og þær voru ekki nema rétt rakar, svo við gátum okkur þess til að Dís hefði einhverjar meltingartruflanir. Sem ábyrgir foreldrar höfðum við nokkrar áhyggjur af drulluskortinum. Eftir kvöldverðarskammtinn af mjólk gerði svo mikið þrumuveður í bleyjunni og þá skilaði úrgangur dagsins sér á einu bretti. Ég ætla ekki að fara frekar út í smáatriði varðandi skítverkin sem fylgdu í kjölfarið, en sem betur fer þurfti ég ekki að skipta um föt sjálfur að verkinu loknu.

Af miklum þunga

apríl 3, 2007

Ljósmóðirin kom í morgun og skellti Dís á vigtina. Dís er orðin 3660 grömm og þar með loksins búin að ná fæðingarþyngd sinni aftur og 30 grömmum betur. Hún var frekar sein að ná aftur fæðingarþyngdinni, en það gæti hafa verið út af tunguhaftinu. Að minnsta kosti er það ekkert til að hafa áhyggjur af.