Archive for maí, 2007

Nýjar myndir

maí 30, 2007

Ég er loks búinn að setja nýjar (og ekki svo nýjar) myndir inn á Flickr. Ég mun héðan í frá setja myndirnar þar af því að það er fljótlegra og þægilegra bæði fyrir mig og fyrir ykkur sem viljið skoða myndirnar. Ég setti líka inn myndaræmu hér til hliðar, sem sýnir alltaf nýjustu myndirnar af Dís á Flickr.

Dís tekur á móti pabba sínum

maí 30, 2007

Þá er ég kominn aftur frá Rovaniemi í Finnlandi, heimabæ jólasveinsins og Lordi. Dís leit á mig gagnrýnum augum þegar ég birtist í stofunni, en brosti svo út að eyrum. Það er ótrúlegt hvað hún hefur stækkað á fimm dögum. Sandra lá í rúminu með flensu, háan hita og hálsbólgu. Hún er núna að verða hitalaus, en er slöpp. Mamma hennar var hjá okkur í gær og er komin aftur í dag. Dís er hæstánægð með að vera í fanginu hjá ömmu sinni.

Dís brosir

maí 21, 2007

Sandra tók nokkrar myndir af brosandi Dís í morgun. Ég hef því miður ekki tíma til að setja nýjar myndir inn fyrr en ég kem frá Finnlandi á mánudaginn í næstu viku.

Feðgin ein á ferð og dauður sími

maí 19, 2007

Ég fór í dag út með Dís í fyrsta skipti án Söndru. Gönguferðin var stutt, við fórum í næstu símabúð til að fá nýja einhverja dós fyrir símann okkar sem hefur verið dauður í viku. Dís grét hástöfum á leiðinni en sofnaði í búðinni. Við fengum nýja dós, en síminn er jafndauður. Viðgerðarmaður sem kom í gær sagði að bilunin væri í símakassa í götunni og að það yrði gert við samdægurs. Í símabúðinni var okkur hins vegar sagt að bilunin hlyti að vera í einhverju tæki hjá okkur milli síma og veggtengils, því netsambandið er í lagi. Við erum búin að skipta um allt nema símtækið sjálft og erum enn símalaus. Það er þó hægt að ná í okkur í gms símunum.

Væntanleg heimsókn II

maí 19, 2007

Árni Dísarafi og Ásta ætla að koma og kíkja á Dís um miðjan júní. Það verður gaman að sjá þau!

Góðar gjafir

maí 18, 2007

Í dag fékk Dís góðar gjafir frá Árna Dísarafa og Ástu: Dömulegan íþróttagalla með sportlegum íþróttaskóm og sokkum. Kærar þakkir til þeirra! Fötin eru vel við vöxt og munu passa næsta sumar þegar Dís verður farin að skokka með pabba sínum.

Heimsókn væntanleg

maí 18, 2007

Í byrjun júní kemur Ása Dísaramma í heimsókn ásamt Emmu föðursystur Dísar og Emmubörnum Sunnu Rós og Guðjóni Inga. Við hlökkum öll þrjú mikið til að fá þau í heimsókn! Við hlökkum líka til að fá þá aftur sumarveðrið sem var hér þegar Ása var síðast í heimsókn og virðist fylgja henni í öllum hennar Þýskalandsferðum.

Nagað í handarbökin

maí 18, 2007

Nú situr Dís í fanginu á mér og nagar sig í handarbökin. Ég veit ekki af hverju. En hún hefur stækkað heilmikið þessa fjóra daga sem ég var í burtu.

Hún á afmæli í dag

maí 12, 2007

hún á ammmmælídag
hún á ammmmælún Dí-ís
hún á ammmmælídag!

Dís á tveggja mánaða afmæli í dag. Það viðrar því miður ekki vel á afmælisdaginn hennar, það er rok og rigning og ekki nema 17-18 stiga hiti.

Kosningadagur á Íslandi

maí 12, 2007

Ég var að útskýra fyrir Dís hvernig kosningarnar á Íslandi ganga fyrir sig. Ég held hún hafi ekki alveg skilið hvernig jöfnunarþingmenn eru reiknaðir út, alla veganna varð hún skrýtin á svipinn. Við vorum sammála um að hvetja alla með kosningarétt til að kjósa og kjósa rétt. Ef einhver er ekki viss hvaða listabókstafur er sá rétti, þá er bara að spyrja okkur Dís.