Ég setti saman barnarúmið í dag. Það var ekkert mál þrátt fyrir lausa rimla og leiðbeiningaleysi, enda á ég ekki langt að sækja mikla hæfileika í að setja saman húsgögn. Og svo fékk ég góða hjálp hjá Söndru. Við rifum í sundur rimlahliðina sem konurnar í búðinni eyddu svo miklum tíma í að líma saman. Hliðin hékk varla saman þrátt fyrir allt trélímið. Við tókum út nokkra rimla þannig að hægt verði að nálgast Dís frá hlið úr hjónarúminu. Þá þarf maður ekki endilega að standa á fætur til að flytja Dís á milli hjónarúms og barnarúms. Ekki vantar í mann letina. Á morgun eða hinn sækjum við rándýra dýnu (án gerviefna) fyrir barnarúmið. Mikilvægasta og merkilegasta lagið í dýnunni er samanþjappaðar, brúnar kókostrefjar. Það dugar ekkert annað en almennileg dýna fyrir litlu prinsessuna á bauninni.








