Archive for maí 6th, 2007

Rínarmaraþon

maí 6, 2007

Í morgun kom Jürgen Dísarafi og fór með okkur út að horfa á Rínarmaraþonið. Dís horfði stórum augum á fólkið hlaupa framhjá okkur í mjög mismunandi ásigkomulagi. Anita Dísaramma bættist svo í hópinn og þegar Dís er búinn að fá mjólkurskammtinn sinn ætlum við að fara út að borða. Það er sumarveður eins og verið hefur síðasta mánuðinn, rúm 20 stig og sól.

Scheiße!!

maí 6, 2007

Við fengum Anke og Arno í heimsókn með ársgamlan son þeirra. Eftir hefðbundna gönguferð um Hallargarðinn áðum við á útiveitingastað á Rínarbakka og allir fengu eitthvað gott að drekka. Dís, sem hafði haldið í sér í tvo daga, ákvað að nota tækifærið þegar Sandra var að gefa henni og fyllti bleyjuna langt umfram hámarksburðargetu. Sandra skipti um bleyju og föt á Dísinni svo lítið bar á, og þegar við komum heim þrifum við hana hátt og lágt. Dís var sjálf hæstánægð með þetta nýja afrek.