Dís fékk algera prinsessumeðferð í dag. Fyrst fékk hún nudd hjá mér og síðan var hún böðuð. Hún var svo afslöppuð á eftir að hún steinsofnaði og svaf á meðan við borðuðum kvöldmat. Nú er spurning hvort við gefum henni nudd og bað á hverjum degi fyrir kvöldmat …








