Archive for júní, 2007
Styttist í Íslandsför
júní 27, 2007Vagg og velta
júní 25, 2007Dís velti sér í fyrsta skipti, svo ég viti til, af bakinu á magann rétt í þessu. Hún var ægilega stolt af þessu þrekvirki, en forvitnin varð stoltinu fljótt yfirsterkari og hún liggur nú á maganum og horfir í allar áttir. Henni finnst verst að geta ekki komist neitt áfram, þrátt fyrir mikil átök. Þannig að næsta skref er að læra að skríða …
Nýr tónn
júní 24, 2007Dís hefur fundið nýjan tón. Í stað þess að hjala, setur hún sig í stellingar, dregur djúpt andann og tónar “ooooooooo” djúpri og rámri röddu. Ég hef kannski verið að spila Tom Waits of mikið.
Hún á afmæli í dag …
júní 23, 2007Dís komin með þýskt vegabréf
júní 22, 2007Sandra sótti í morgun vegabréf Dísar. Það gildir í fimm ár, en ég er hræddur um að myndin verði þá ekki lengur mikið lík fyrirsætunni. Samt varð myndin að uppfylla nýjan þýskan staðal: Dís mátti ekki brosa, varð að horfa beint í myndavélina og halda höfðinu réttu. Þetta tókst í fyrstu tilraun, það var bara tekin ein mynd af henni á ljósmyndastofunni!
Gjafir úr öllum heimshornum
júní 18, 2007Dís hefur fengið gjafir frá vinum og vandamönnum víða um jarðir. Þarámeðal frá Bandaríkjunum, Japan, Englandi, Finnlandi og auðvitað Þýskalandi og Íslandi. Nú hefur Túnis bæst við, en þaðan barst Dís forkunnarfagurt gullhálsmen með nafnið hennar (fyrsta skírnarnafnið, Lona) með latnesku og arabísku letri grafið á hendi Fatímu, sem verndar gegn öllu illu.
Vegabréf fyrir Dís
júní 18, 2007Dís fór í myndatöku í dag og síðan sóttum við um vegabréf handa henni. Það tók dálítinn tíma að ganga frá pappírunum og á endanum gaf Dís skít í alla skriffinnskuna með miklum látum svo Sandra varð að hlaupa með hana í bleyjuherbergið. Ég varð eftir og safnaði saman vottorðum og vegabréfum, og beið svo eftir að þær mæðgur birtust aftur. Sem betur fer vorum við þá búin að ganga frá umsókninni og greiða gjaldið. Dís svaf vel og lengi á eftir.
Góðir gestir komnir og farnir
júní 18, 2007Myndir
júní 11, 2007
Ég er búinn að setja inn nýjar myndir á Flickr, meðal annars frá heimsókn fjölskyldunnar frá Íslandi.
Nýja Jórvík í ágúst
júní 11, 2007Við erum búin að ganga frá flugi til New York í ágúst. Við ætlum að heimsækja Árna, Yoko og Shintaró, og fara í brúðkaup Jays og Aileens. Það verður semsagt allnokkur þvælingur á Dísinni í sumar!












