Dís hefur fengið gjafir frá vinum og vandamönnum víða um jarðir. Þarámeðal frá Bandaríkjunum, Japan, Englandi, Finnlandi og auðvitað Þýskalandi og Íslandi. Nú hefur Túnis bæst við, en þaðan barst Dís forkunnarfagurt gullhálsmen með nafnið hennar (fyrsta skírnarnafnið, Lona) með latnesku og arabísku letri grafið á hendi Fatímu, sem verndar gegn öllu illu.
Archive for júní 18th, 2007
Gjafir úr öllum heimshornum
júní 18, 2007Vegabréf fyrir Dís
júní 18, 2007Dís fór í myndatöku í dag og síðan sóttum við um vegabréf handa henni. Það tók dálítinn tíma að ganga frá pappírunum og á endanum gaf Dís skít í alla skriffinnskuna með miklum látum svo Sandra varð að hlaupa með hana í bleyjuherbergið. Ég varð eftir og safnaði saman vottorðum og vegabréfum, og beið svo eftir að þær mæðgur birtust aftur. Sem betur fer vorum við þá búin að ganga frá umsókninni og greiða gjaldið. Dís svaf vel og lengi á eftir.










