Dís fór í myndatöku í dag og síðan sóttum við um vegabréf handa henni. Það tók dálítinn tíma að ganga frá pappírunum og á endanum gaf Dís skít í alla skriffinnskuna með miklum látum svo Sandra varð að hlaupa með hana í bleyjuherbergið. Ég varð eftir og safnaði saman vottorðum og vegabréfum, og beið svo eftir að þær mæðgur birtust aftur. Sem betur fer vorum við þá búin að ganga frá umsókninni og greiða gjaldið. Dís svaf vel og lengi á eftir.










júní 21, 2007 kl. 4:12 pm
hæ hæ Dís frænka mikið ert þú falleg á passamyndunum, þú virðist svo skýr. Alveg rétt hjá þér að gefa skít í allt þetta. Flórida frændurnir þínir eru heima á Íslandi og voru einmitt að láta endurnýja Íslensku vegabréfin sín og gekk það allt eins og í sögu og gekk mjög snöggt fyrir sig. Þeir voru sko heppnir. Þeir Tryggvi og Þór fara aftur til Flórida þann 4 júlí þannig að ég veit ekki hvort að þið náið nokkuð að hittast allt of lítill tími. En auðvita verður Ingi Flórídafrændi staddur á landinu, og meira að segja heima hjá Árna Inga afa þínum þannig ég er viss um að hann fái að sjá þig. Bestu kveðjur litla frænka.
Hafdís