Archive for júní 22nd, 2007

Dís komin með þýskt vegabréf

júní 22, 2007

Sandra sótti í morgun vegabréf Dísar. Það gildir í fimm ár, en ég er hræddur um að myndin verði þá ekki lengur mikið lík fyrirsætunni. Samt varð myndin að uppfylla nýjan þýskan staðal: Dís mátti ekki brosa, varð að horfa beint í myndavélina og halda höfðinu réttu. Þetta tókst í fyrstu tilraun, það var bara tekin ein mynd af henni á ljósmyndastofunni!