Archive for júní, 2007

Íslandsferð

júní 10, 2007

Nú erum við búin að bóka flug til Íslands fyrir litlu fjölskylduna. Við lendum seint á þriðjudeginum 3. júlí og fljúgum út aftur á sunnudag 29. júlí. Dís er þegar farin að hlakka mikið til fyrstu Íslandsferðarinnar. Alla veganna þegar ég spurði hana þá brosti hún og sagði já.

Góðir gestir komnir og farnir

júní 10, 2007

Ása, Emma, Sunna og Guðjón komu til okkar í heimsókn í vikunni. Dís er afskaplega félagslynd og naut allrar athyglinnar sem hún fékk. Við fórum öll í sund á miðvikudag, og á fimmtudag fórum við í dýragarðinn í Duisburg, að vísu án Söndru og Dísar. Það var yfir 30 stiga hiti í dýragarðinum og hvort tveggja dýr og gestir dösuð. Það var gaman að fá ömmu, frænkur og frænda Dísar í heimsókn, og mjög tómlegt á heimilinu þegar þau voru farin.