Archive for júlí, 2007
Í Lystigarðinum
júlí 26, 2007Dís hlær
júlí 25, 2007Dís á Íslandi
júlí 8, 2007Við erum nú búin að vera nokkra daga á Íslandi. Dís heillar alla upp úr skónum með því að herma eftir Tom Waits.
Dís í myndatöku
júlí 3, 2007Dís tilbúin fyrir Íslandsför
júlí 2, 2007Dís með hatt
júlí 2, 2007Með svona skrautlegan hatt myndi Dís sóma sér vel á Ascot veðreiðunum.
Að sitja
júlí 2, 2007Dís finnst leiðinlegt að liggja nema hún sé annað hvort þreytt eða á brjósti. Það langskemmtilegasta er að sitja. Þegar hún liggur á bakinu rembist hún við að setjast upp. Fæturnir standa beinir út í loftið og lyftast um leið og hún lyftir höfði og herðum — eins og hún sé að gera magaæfingar. Ef svo fer fram sem horfir verður hún fljótlega komin með fínan six-pack.
Fiskhús
júlí 1, 2007Við fórum út að borða, á Fiskhús, með foreldrum Söndru. Dís sofnaði náttúrulega í vagninum á leiðinni og vaknaði svo um leið og aðalrétturinn kom á borðið. Hún vildi líka fá eitthvað að borða. Eftir matinn sat hún lengi og horfði hugfangin á litríka fiska í fiskabúri við hliðina á borðinu okkar. Allt sem er litríkt og hreyfist er í miklu uppáhaldi.













