Ferðin til New York gekk vonum framar. Flugið gekk ótrúlega vel. Við vorum svo heppin að fá vöggu fyrir Dísina, sem hún gat sofið í, bæði í fluginu út og heim aftur. Við vorum í góðu yfirlæti hjá Árna, Yoko og Shintaró fyrstu vikuna, þar sem við fengum höfðinglegar móttökur, og svo síðustu tvær næturnar á hóteli rétt við Wall Street á Manhattan til að vera í nágrenni við brúðkaupið. Við fórum semsagt í glæsilegt brúðkaup föstudagskvöldið 24. ágúst í Battery Park á suðurodda Manhattaneyjunnar. Dís svaf í upphafi athafnarinnar, en vaknaði og urraði af ánægju þegar hjónin voru gefin saman. Hún svaf síðan áfram í veislunni, þrátt fyrir mikinn klið og háværa Bollywood-danstónlist.
Síðasta daginn okkar í New York fórum við fjölskyldan í stutta siglingu um sundin við Manhattan, þar var þessi mynd af Dís tekin með Frelsisstyttuna í bakgrunni.









