Árni Dísarafi á afmæli í dag. Til hamingju með daginn!
Archive for september, 2007
Afmæli
september 30, 2007Skrið
september 30, 2007Dís byrjaði að skríða í dag. Hún var allt í einu komin á fullt skrið á stofugólfinu. Það er eins gott að fara að hreinsa allt lauslegt úr neðstu hillunum, setja öryggislok í innstungur og setja barnalæsingar á skápa og skúffur!
Tanntaka
september 29, 2007Dís er greinilega að byrja að taka tennur, þótt ekkert sjáist enn. Hún vaknar á nóttunni á næstum klukkutíma fresti og verður ekki róleg fyrr en hún fær eitthvað að naga. Á daginn vill hún helst alltaf hafa eitthvað upp í sér. Sandra keypti sérstakt áhald, dálítið líkt tannbursta, fyrir Dís að naga og það er í miklu uppáhaldi. Dís er orðin afskaplega handlagin og getur snúið nagburstanum á alla kanta og stungið honum upp í sig eldsnöggt án þess að missa marks.
Sextugsafmæli
september 16, 2007Anita Dísaramma er sextug í dag. Við óskum henni til hamingju með daginn!
Matur
september 16, 2007Nú er ég Dísarpabbinn loksins kominn heim eftir viku í Afríku. Dísin átti að fá sína fyrstu máltíð núna þegar hún er orðin hálfs árs gömul. Í gær fékk hún semsagt mauk úr kartöflum, kjöti og grænmeti. Eitthvað misskildi hún hvað var í gangi, hún hélt að við værum að plata sig í einhvern leik þegar hún ætti í raun að fá mjólkina sína. Auk þess var þetta mauk greinilega ekki að hennar smekk. Það litla af maukinu sem rataði rétta leið olli miklum grettum og restinni hrækti hún út úr sér. Síðan upphófst mikill grátur sek ekki linnti fyrr en hún var komin á brjóst. Við ákváðum að breyta aðeins uppskriftinni á maukinu.
Hún á ammmælídag!
september 2, 2007Emma Dísarfrænka á afmæli í dag. Til hamingju með daginn!
Um hljóð og óhljóð ungbarna
september 1, 2007
Stuttmynd um óhljóð ungbarna almennt og óhljóðin í Dís sérstaklega.
Skrið
september 1, 2007Við áttum alveg eins von á að Dís myndi byrja að skríða í New York, en þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og miklar æfingar tókst það ekki alveg. Þegar hún er lögð á bakið snýr hún sér yfirleitt strax á magann og reynir hvað hún getur að skríða, jafnan með háværum kvörtunum þegar það tekst ekki. Það vantar enn dálítið upp á að hendur og fætur vinni vel saman, en hreyfingarnar eru í rétta átt. Það furðulega er að hún reisir sig ekki bara á hendur og hné, heldur oft á hendur og fætur, og reynir að komast þannig áfram á fjórum fótum. Við verðum fljótlega að gera íbúðina okkar örugga fyrir hraðskreið smábörn.
Tímaskekkja
september 1, 2007Dís er loksins að verða búin að jafna sig á tímaskekkjunni. Síðustu nótt svaf hún vel frá níu að kvöldi til níu að morgni, en vaknaði oft til að drekka. Svefnvenjurnar virðast vera sveigjanlegri en matarvenjurnar. Hún var nánast hætt að drekka á nóttunni áður en við fórum til New York.








