Matur

september 16, 2007

Nú er ég Dísarpabbinn loksins kominn heim eftir viku í Afríku. Dísin átti að fá sína fyrstu máltíð núna þegar hún er orðin hálfs árs gömul. Í gær fékk hún semsagt mauk úr kartöflum, kjöti og grænmeti. Eitthvað misskildi hún hvað var í gangi, hún hélt að við værum að plata sig í einhvern leik þegar hún ætti í raun að fá mjólkina sína. Auk þess var þetta mauk greinilega ekki að hennar smekk. Það litla af maukinu sem rataði rétta leið olli miklum grettum og restinni hrækti hún út úr sér. Síðan upphófst mikill grátur sek ekki linnti fyrr en hún var komin á brjóst. Við ákváðum að breyta aðeins uppskriftinni á maukinu.

Skildu eftir svar