Dís er greinilega að byrja að taka tennur, þótt ekkert sjáist enn. Hún vaknar á nóttunni á næstum klukkutíma fresti og verður ekki róleg fyrr en hún fær eitthvað að naga. Á daginn vill hún helst alltaf hafa eitthvað upp í sér. Sandra keypti sérstakt áhald, dálítið líkt tannbursta, fyrir Dís að naga og það er í miklu uppáhaldi. Dís er orðin afskaplega handlagin og getur snúið nagburstanum á alla kanta og stungið honum upp í sig eldsnöggt án þess að missa marks.








