Archive for október, 2007

Dís stendur á fætur í rúminu

október 28, 2007

D�s stendur á fætur � rúminu

Dís stóð á fætur í rúminu hjálparlaust í fyrsta skipti í gær. Hún var auðvitað mjög ánægð með afrekið.

Dís opnar rauðvínsflösku

október 25, 2007

Sandra skildi Dís eftir í stofunni í nokkrar mínútur meðan hún var að taka sig til áður en hún færi út með Dísina. Allt í einu heyrir hún mikinn skurk og lítur inn í stofu. Þá hafði Dís skriðið að vínskápnum og kippt í rauðvínsflösku (prýðilegt chianti, vel valið hjá litlu) af svo miklu afli að flaskan brotnaði. Þegar Sandra kom að Dís sat hún stjörf í rauðvínspolli með glerbrot allt í kring. Sem betur fer varð henni ekki meint af.

Staðið í ströngu

október 22, 2007

Stendur og heldur bara  eina hendi

Dís er farin að halda miklu betur jafnvægi þegar hún stendur. Við tókum þessa mynd í morgun, Dís heldur bara í eina hendi.

Matur

október 21, 2007

Dís fékk í dag mat sem hún hafði ekki bragðað áður: sætar kartöflur og dvergbítur (zucchini), soðið og stappað auðvitað. Þessi nýi réttur fékk miklu betri viðtökur en fyrri tilraunaréttir og Dís hámaði í sig næstum heilt glas þótt maukið væri mun kekkjóttara en það sem hún hafði samþykkt hingað til. Við höfum nefnilega komist að því að hún vill frekar fljótandi mauk en þykkt eða kekkjótt. Til dæmis vildi hún um daginn ekki borða mauk úr dvergbít og hrísgrjónum fyrr en það hafði verið pressað í gegnum sigti. Við höldum að Dís sé að taka vaxtarkipp, hún borðaði heilmikið í dag og hefur samt verið dugleg að drekka mjólk. Hún vill kannski fara að ná meðalstærði og þyngd.

Dís og myndavélin

október 14, 2007

Dís reynir að ná myndavélinni af pabba sínum.

Dís á ströndinni

október 13, 2007

Af misjöfnu þrífast börnin best.

Að standa í fæturna

október 9, 2007

Dís er nú farin að standa á fætur ef hún nær í eitthvað til að halda sér í eða styðja sig við. Það er víst ekki nóg að geta skriðið. Við tókum rúmið hennar í sundur, settum alla rimla í og lækkuðum botninn þannig að hún nái ekki að vippa sér yfir hliðina. Síðan settum við öryggislok í allar innstungur og mátti ekki seinna vera, Dís skríður nú um alla íbúð og kannar hvern krók og kima.  Sandra fór með Dís í U5 (fimmtu ungbarnaskoðun) um daginn. Dís er aðeins undir meðallagi í stærð og þyngd, en samt innan eðlilegra marka. Það kom lækninum hins vegar á óvart hvað hreyfingar og viðbrögð voru góð. Ég held að Dís sé bara grönn og stælt af öllu spriklinu!