Að standa í fæturna

október 9, 2007

Dís er nú farin að standa á fætur ef hún nær í eitthvað til að halda sér í eða styðja sig við. Það er víst ekki nóg að geta skriðið. Við tókum rúmið hennar í sundur, settum alla rimla í og lækkuðum botninn þannig að hún nái ekki að vippa sér yfir hliðina. Síðan settum við öryggislok í allar innstungur og mátti ekki seinna vera, Dís skríður nú um alla íbúð og kannar hvern krók og kima.  Sandra fór með Dís í U5 (fimmtu ungbarnaskoðun) um daginn. Dís er aðeins undir meðallagi í stærð og þyngd, en samt innan eðlilegra marka. Það kom lækninum hins vegar á óvart hvað hreyfingar og viðbrögð voru góð. Ég held að Dís sé bara grönn og stælt af öllu spriklinu!

2 svör to “Að standa í fæturna”

  1. Ása segir:

    Spræk stelpa Dísin! Það verður gaman að sjá hana aftur og allar framfarirnar. Hún verður örugglega farin að hlaupa fyrir jól :) Kveðja frá Ásu Dísarömmu

  2. Emma segir:

    Dugleg Dís :-)
    Nú er bara að fara að hnýta á sig hlaupaskóna, dísarforeldrar!
    Knús og kossar frá öllum í Þverásnum.
    Emma


Skildu eftir svar