Ferðin til Langeoog

nóvember 11, 2007

Vetrarsól

Við erum nú komin heim eftir tíu daga ferð til Langeoog, sem er eyja í Norðursjó rétt við strönd Þýskalands. Ferðin til Langeoog gekk vel. Eftir rúmlega þriggja klukkustunda keyrslu, hálftíma sjóferð og fimmtán mínútna lestarferð komum við í orlofshúsið okkar, við þrjú og Heike, Ralf, Jolina og Finjas. Þegar þrjú lítil börn koma saman verður handagangur í öskjunni. Dís lét sér ekki bregða þótt tvö börn væru að hamast í sér og sýndi ótrúlega en ekki óendanlega þolinmæði.

Langeoog er ferðamannabær og í nóvember loka flest veitingahús, verslanir og þjónusta, þannig að það var ekki margt annað að gera en að fara í gönguferðir, láta krakkana hamast í íbúðinni eða fara á veitingastaðinn He’ Tant þar sem við urðum strax fastagestir. Heike fór heim með sína krakka á fimmtudaginn 8. Á föstudeginum skall á vonskuveður. Við ætluðum að yfirgefa eyjuna áður en hún færi á kaf í stórsjó, en öllum ferjuferðum var aflýst nema einni. Við fórum með þessari einu ferju, en henni var snúið við því það þótti ekki óhætt að leggja að bryggju á meginlandinu. Við fórum því aftur í orlofshúsið okkar og vorum þar yfir nótt. Á laugardagsmorgninum tókst okkur að komast með ferju í land og heimferðin gekk hratt og vel. Myndir úr ferðinni eru komnar á Flickr síðuna okkar.

Ein ummæli to “Ferðin til Langeoog”

  1. Ása segir:

    Skemmtilegar myndir frá fríinu á Langeoog og greinilega mikið fjör hjá börnunum :) Myndin af Dís þar sem hún stendur uppi í rúminu og horfir út um gluggann í Langeoog er algjör perla!
    Bestu kveðjur af Klakanum.


Skildu eftir svar