Archive for nóvember 12th, 2007

8 mánaða

nóvember 12, 2007

Í dag, 12. nóvember, er Dís orðin 8 mánaða. Á afmælisdaginn tók hún upp á því í fyrsta skipti að veifa bless. Hún er farin að segja “ma-ma” og “pa-bi”, en hún segir líka “ba-ba-ba”, “ma-ma-ma”, “ooooooo” og “eeeee” og virðist ekki gera neinn sérstakan greinarmun á þessum “orðum” eða gefa þeim neina sérstaka merkingu. Hún segir líka stundum “ba-ba-ba” hljóðlaust, sem er dálítið eins og hún sé að herma eftir gullfisk. Það er ótrúlega gaman að fylgjast með hvernig hún lærir og þroskast.