Gubbupest

nóvember 25, 2007

Í gærmorgun, skömmu fyrir klukkan fimm, vöknuðum við Sandra við það að Dís ældi í stórum bunum. Hún ældi svo af og til fram eftir morgninum, en virtist vera að lagast um hádegið. Hún var líka óskaplega slöpp og dauf. Eftir hádegið tók við þvílíkur niðurgangur, að eftir hvert skipti varð að þvo Dís hátt og lágt, og skipta um öll föt. Í dag var Dís mun hressari og virðist nú vera búin að ná sér að mestu. Hún drakk mikið í dag og hélt því öllu niðri, sem betur fer.  Við vonum að þessi fyrsta gubbupest sé nú afstaðin.

Skildu eftir svar