Dís tók upp fyrstu jólapakkana sína á aðfangadagskvöld. Hún hafði meiri áhuga á jólapappírnum en innihaldinu, alla veganna til að byrja með, en það var ekki við öðru að búast. Dís fékk margar og góðar gjafir frá ættingjum á Íslandi og í Þýskalandi, kærar þakkir!!
Archive for desember, 2007
Gleðileg jól!
desember 27, 2007Svefn
desember 22, 2007Dís hefur enn verið að vakna á nóttunni til að drekka. Við ákváðum að það væri kominn tími til að breyta því. Í fyrrinótt fékk hún ekki að drekka fyrr en undir morgunn. Þegar hún vaknaði sá ég til þess að hún sofnaði aftur án þess að drekka. Það gekk furðu vel, en hún vaknaði samt nokkuð oft frá miðnætti til klukkan hálfþrjú en þá gafst hún upp og svaf til klukkan sex möglunarlaust. Í nótt vaknaði hún sjaldnar og fékk svo að drekka um fimmleytið. Við vonum að hún verði fljót að venja sig á að sofa alla nóttina án þess að vakna til að drekka. Sandra er búin að gleyma því hvernig er að sofa átta klukkutíma í einu.
Níu mánaða afmæli
desember 12, 2007Dís er níu mánaða í dag. Það fer að styttast í fyrsta alvöru afmælisdaginn!
Barnaherbergi
desember 9, 2007Nú erum við Sandra búin að flytja úr svefnherberginu og gera það að barnaherbergi. Dís er mjög ánægð með þessar breytingar. Hún hefur náttúrulega rimlarúmið sitt, en líka svefnsófa, hillur fyrir dót og barnateppi sem við keyptum á föstudaginn. Hún sefur betur ein og endist líka lengur við að leika sér í sínu herbergi, enn sem komið er að minnsta kosti. Við erum líka laus við leikföng og barnadót úr stofunni. Við höfum engar barnaskreytingar í herberginu, en Dís mun eflaust bæta úr því þegar hún byrjar að teikna og lita.








