Nú erum við Sandra búin að flytja úr svefnherberginu og gera það að barnaherbergi. Dís er mjög ánægð með þessar breytingar. Hún hefur náttúrulega rimlarúmið sitt, en líka svefnsófa, hillur fyrir dót og barnateppi sem við keyptum á föstudaginn. Hún sefur betur ein og endist líka lengur við að leika sér í sínu herbergi, enn sem komið er að minnsta kosti. Við erum líka laus við leikföng og barnadót úr stofunni. Við höfum engar barnaskreytingar í herberginu, en Dís mun eflaust bæta úr því þegar hún byrjar að teikna og lita.








