Dís hefur enn verið að vakna á nóttunni til að drekka. Við ákváðum að það væri kominn tími til að breyta því. Í fyrrinótt fékk hún ekki að drekka fyrr en undir morgunn. Þegar hún vaknaði sá ég til þess að hún sofnaði aftur án þess að drekka. Það gekk furðu vel, en hún vaknaði samt nokkuð oft frá miðnætti til klukkan hálfþrjú en þá gafst hún upp og svaf til klukkan sex möglunarlaust. Í nótt vaknaði hún sjaldnar og fékk svo að drekka um fimmleytið. Við vonum að hún verði fljót að venja sig á að sofa alla nóttina án þess að vakna til að drekka. Sandra er búin að gleyma því hvernig er að sofa átta klukkutíma í einu.









desember 22, 2007 kl. 8:31 pm
þOLINMÆÐI ÞRAUTIR VINNUR ALLAR!!!!
Vonadi fer þetta allt að ganga betur.
Það verður spennandi fyrir Dís að fá Ásu ömmu sína í heimsókn, hún er ábyggilega á leiðinni nú þegar. Bestu jólakveðjur í bæjinn
knús og kossar úr 24°c og glampandi góðu vetrarveðri
Hafdís Dísarfrænka
desember 23, 2007 kl. 10:40 am
Já, Ása Dísaramma kom til okkar í gær. Dís svaf vel í nótt, þetta er allt á réttri leið. Jólakveðjur til allra í FLA úr köldu en björtu veðri í Düsseldorf!