Dís burstar í sér tennurnar (allar þrjár), með hjálp mömmu sinnar.
Um Dís og foreldra hennar
Dís burstar í sér tennurnar (allar þrjár), með hjálp mömmu sinnar.
Í gærkvöldi fór Sandra til systur sinnar að passa Jólínu og Finjas, sem þýddi að við Dís vorum ein heima. Það gekk allt vel, nema Dís vildi ekki borða kvöldmatinn sinn fyrr en svo seint að um leið og hún var orðin södd varð ég að búa hana í háttinn. Hún var þá orðin svo sifjuð að hún sofnaði um leið og ég lagði hana í rúmið. Dís lét ekkert í sér heyra fyrr en um fimm í morgun, en hún fær að drekka og nýja bleyju á milli fimm og sex á morgnana. Svo sefur hún áfram til klukkan átta hálfníu. Vonandi heldur hún því áfram!
Hún var dösuð, litla Dísin sem tók á móti pabba sínum um klukkan tvö í gær. Hún var nývöknuð eftir fjögurra klukkutíma svefn og hafði ekkert borðað allan daginn. Dís var með dálítinn hita og óskaplega þreytt. Hún svaf meira og minna það sem eftir var dags og borðaði ekkert, en drakk þó ágætlega. Hún vildi bara vera í fanginu á mömmu sinni eða pabba, eða í rúminu. Dís svaf í alla síðustu nótt og vaknaði aðeins hressari en samt pirruð í morgun. Hún drakk mjólkurlíkið sitt (hrísgrjónadrykk) en vildi ekki borða morgunmatinn. Hún er miklu hressari en í gær, þótt hún sé ekki komin með fulla orku eða matarlyst. Það er gaman að sjá hana brosa og hlæja aftur, enda ekki annað hægt en að vera í góðu skapi á tíu mánaða afmælisdeginum.
Dís og foreldrar hennar óska vinum og ættingjum nær og fjær gleðilegs nýs árs og kærar þakkir fyrir það liðna! Dís vaknaði um miðnætti á gamlárskvöld og horfði á flugelda smá stund, en sofnaði svo fljótt aftur. Áramótaheitið hjá Dís var að læra að ganga sem allra fyrst.