Hún var dösuð, litla Dísin sem tók á móti pabba sínum um klukkan tvö í gær. Hún var nývöknuð eftir fjögurra klukkutíma svefn og hafði ekkert borðað allan daginn. Dís var með dálítinn hita og óskaplega þreytt. Hún svaf meira og minna það sem eftir var dags og borðaði ekkert, en drakk þó ágætlega. Hún vildi bara vera í fanginu á mömmu sinni eða pabba, eða í rúminu. Dís svaf í alla síðustu nótt og vaknaði aðeins hressari en samt pirruð í morgun. Hún drakk mjólkurlíkið sitt (hrísgrjónadrykk) en vildi ekki borða morgunmatinn. Hún er miklu hressari en í gær, þótt hún sé ekki komin með fulla orku eða matarlyst. Það er gaman að sjá hana brosa og hlæja aftur, enda ekki annað hægt en að vera í góðu skapi á tíu mánaða afmælisdeginum.








