Lasin Dís

janúar 12, 2008

Hún var dösuð, litla Dísin sem tók á móti pabba sínum um klukkan tvö í gær. Hún var nývöknuð eftir fjögurra klukkutíma svefn og hafði ekkert borðað allan daginn. Dís var með dálítinn hita og óskaplega þreytt. Hún svaf meira og minna það sem eftir var dags og borðaði ekkert, en drakk þó ágætlega. Hún vildi bara vera í fanginu á mömmu sinni eða pabba, eða í rúminu. Dís svaf í alla síðustu nótt og vaknaði aðeins hressari en samt pirruð í morgun. Hún drakk mjólkurlíkið sitt (hrísgrjónadrykk) en vildi ekki borða morgunmatinn. Hún er miklu hressari en í gær, þótt hún sé ekki komin með fulla orku eða matarlyst. Það er gaman að sjá hana brosa og hlæja aftur, enda ekki annað hægt en að vera í góðu skapi á tíu mánaða afmælisdeginum. 

3 svör to “Lasin Dís”

  1. Ása segir:

    Óska Dísinni minni innilega til hamingju með 10 mánaða afmælið. Leitt að hún skuli vera lasin litla skinnið, vonandi batnar henni fljótt. Ég held söknuðinum í skefjum með því að skoða í tölvunni myndirnar sem ég tók þessar tvær yndislegu vikur sem ég var hjá ykkur um jól og áramót. Kærar kveðjur frá Ásu Dísarömmu

  2. Hafdís Garðars segir:

    Gott að loksins fá að heira af Dísinni.. Mikið fannst mér langt um liðið.. Vonadi fer heilsan að skána. Bestu kveðjur Dísin mín,
    knús HAfdís Dísarfrænka

  3. disin segir:

    Takk fyrir kveðjurnar! Dís virðist alveg batnað af þessu, sem betur fer.


Skildu eftir svar