Archive for febrúar, 2008

Dís í körfu

febrúar 24, 2008

Dís var slöpp í gær, svaf mikið og var með slæman hósta. Hún var með 38,5 stiga hita þegar við mældum hana síðdegis. Dís er hressari í dag, eins og sést í þessu vídeói sem ég tók í morgun. Hún tók upp á því sjálf að spila körfubolta!

Kvef

febrúar 22, 2008

Dís hefur verið kvefuð undanfarið. Síðustu þrjár nætur hefur hún vaknað og hóstað mikið. Á daginn rennur stanslaust úr nefinu. Hún er samt full af orku og í yndislega góðu skapi, nema rétt á meðan verið er að snýta henni. 

Da!

febrúar 17, 2008

Dís bendir á það sem henni finnst áhugavert eða það sem hún vill og segir “da!”
Þetta myndband var tekið í gær (laugardag 16. febrúar). 

Heimsókn í leikskólann

febrúar 14, 2008

Með rjóðar kinnar

Sandra fór með Dís í heimsókn í leikskólann í gær. Dís leist vel á og lék á als oddi, við höfum engar áhyggjur af því að henni líki ekki að vera þar. Krakkarnir, sem eru 1-3 ára, tóku á móti Dís með miklum fagnaðarlátum og hrópuðu: “Vei, nýtt barn! Nýtt barn!”

Í dag er Dís frekar pirruð. Hún er dálítið kvefuð og svaf lengi um miðjan daginn.  Hún æðir um allt og virðist ekki vanta kraftinn, en fer að væla um leið og eitthvað er ekki eins og hún vill hafa það. 

Leikskólapláss

febrúar 12, 2008

Við Sandra fengum góðar fréttir í síðustu viku: Sandra fær aftur vinnuna sem hún var í áður en Dís fæddist (samningurinn rann út á meðan Sandra var í barneignarleyfi), því konan sem tók við af Söndru er búin að segja upp og yfirmaðurinn vill fá Söndru aftur. Aðalfréttin er að Dís fær pláss í leikskólanum á vinnustaðnum. Leikskólinn er lítill og mikil eftirsókn eftir lausum plássum, þannig að þetta kom okkur mjög ánægjulega á óvart.

Svo komumst við að því, okkur til enn frekari ánægju, að það er nýbúið að lækka leikskólagjöld í Hilden, þar sem vinnustaðurinn er, og þau eru þarmeð þau lægstu í allri Norðurrín-Vestfalíu. Við vorum farin að hafa nokkrar áhyggjur af leikskólamálum, því Sandra var búin að sækja um fyrir Dís á mörgum leikskólum í Düsseldorf og hvergi fengið jákvæð svör.

Dís fer í heimsókn í leikskólann á morgun, en byrjar svo í “aðlögun” í mars um leið og hún er orðin eins árs. Sandra byrjar að vinna aftur 1. apríl og þá byrjar Dís líka fyrir alvöru í leikskólanum. Til að byrja með verður hún í leikskólanum fjóra daga í viku í fimm tíma í senn. Við vonum bara að hún verði farin að ganga þá!