Archive for febrúar 12th, 2008

Leikskólapláss

febrúar 12, 2008

Við Sandra fengum góðar fréttir í síðustu viku: Sandra fær aftur vinnuna sem hún var í áður en Dís fæddist (samningurinn rann út á meðan Sandra var í barneignarleyfi), því konan sem tók við af Söndru er búin að segja upp og yfirmaðurinn vill fá Söndru aftur. Aðalfréttin er að Dís fær pláss í leikskólanum á vinnustaðnum. Leikskólinn er lítill og mikil eftirsókn eftir lausum plássum, þannig að þetta kom okkur mjög ánægjulega á óvart.

Svo komumst við að því, okkur til enn frekari ánægju, að það er nýbúið að lækka leikskólagjöld í Hilden, þar sem vinnustaðurinn er, og þau eru þarmeð þau lægstu í allri Norðurrín-Vestfalíu. Við vorum farin að hafa nokkrar áhyggjur af leikskólamálum, því Sandra var búin að sækja um fyrir Dís á mörgum leikskólum í Düsseldorf og hvergi fengið jákvæð svör.

Dís fer í heimsókn í leikskólann á morgun, en byrjar svo í “aðlögun” í mars um leið og hún er orðin eins árs. Sandra byrjar að vinna aftur 1. apríl og þá byrjar Dís líka fyrir alvöru í leikskólanum. Til að byrja með verður hún í leikskólanum fjóra daga í viku í fimm tíma í senn. Við vonum bara að hún verði farin að ganga þá!