Archive for mars, 2008
Páskahret
mars 24, 2008Dís í jaðaríþróttum
mars 24, 2008
Dís reynir að velta sér yfir sófaarminn og láta sig detta á púða…
Gleðilega páska!
mars 23, 2008Dís óskar vinum og vandamönnum nær og fjær (sérstaklega fjær) gleðilegra páska! Hér í Düsseldorf er páskahret, snjóföl í skuggum og pollurinn á svölunum er frosinn. Í dag, páskadag, er að vísu bjart og kyrrt, en síðustu daga hefur verið hvasst og gengið á með slyddu og haglélum. Við vonum að páskahretið fari með páskunum og vorið komi brátt aftur með sól og yl.
Dís drekkur vatn með tilþrifum
mars 22, 2008Dís vill drekka sjálf úr glasi eins og aðrir.
Í indverskum sparifötum
mars 21, 2008Fyrsti afmælisdagurinn
mars 12, 2008Átvagl og sælkeri
mars 11, 2008Afsakið langt blogghlé, en ég Dísarpabbinn hef verið á ferðalagi. Dís var nokkuð lengi að ná sér af kvefinu en er nú stálslegin. Matarlystin er komin aftur og er meiri en nokkru sinni. Dís vill helst ekki neinn barnamat eða gums, heldur það sem við borðum. Hún hámar í sig brauð með smurosti í morgunmat. Í gær borðaði hún í hádegismat hjartargúllas, sem var vel kryddað með sterkum pipar frá Nígeríu, og soðnar gulrætur með. Hún vildi ekki sjá grænmetismauk úr krukku. Um daginn fengum við gesti í mat og Sandra eldaði rjómalagaða karrísúpu með suðrænum ávöxtum sem forrétt. Dís fékk að smakka og lét síðan öllum illum látum þangað til hún fékk almennilegan skammt af súpunni í skál. Stelpan er algjör sælkeri.












