Átvagl og sælkeri

mars 11, 2008

Afsakið langt blogghlé, en ég Dísarpabbinn hef verið á ferðalagi. Dís var nokkuð lengi að ná sér af kvefinu en er nú stálslegin. Matarlystin er komin aftur og er meiri en nokkru sinni. Dís vill helst ekki neinn barnamat eða gums, heldur það sem við borðum. Hún hámar í sig brauð með smurosti í morgunmat. Í gær borðaði hún í hádegismat hjartargúllas, sem var vel kryddað með sterkum pipar frá Nígeríu, og soðnar gulrætur með. Hún vildi ekki sjá grænmetismauk úr krukku. Um daginn fengum við gesti í mat og Sandra eldaði rjómalagaða karrísúpu með suðrænum ávöxtum sem forrétt. Dís fékk að smakka og lét síðan öllum illum látum þangað til hún fékk almennilegan skammt af súpunni í skál. Stelpan er algjör sælkeri.

Skildu eftir svar