Fyrsta nóttin án foreldranna

maí 12, 2008

Við Sandra fórum á tónleika á laugardagskvöldið. Dís gisti hjá ömmu sinni og afa, en þetta er í fyrsta skiptið sem hún er yfir nótt alveg án okkar foreldranna. Dís hafði það mjög gott hjá þeim og kvartaði ekkert. Hún vaknaði um morguninn í ljómandi skapi og virtist ekki sakna okkar neitt. Við sóttum hana síðan á sunnudaginn upp úr hádegi, mjög fegin að þetta hefði tekist svona vandræðalaust, okkar allra vegna!

Ein ummæli to “Fyrsta nóttin án foreldranna”

  1. Emma segir:

    Hæ hæ
    Væri gaman að fá nýjar fréttir og myndir ;)
    bkv. Emma og kó


Skildu eftir svar