
Ása Dísaramma kom í heimsókn til okkar í tvær vikur í júní. Á föstudaginn, áður en Dísaramman hélt aftur til Íslands, fórum við í gönguferð um Kaiserswerth, hverfi norðarlega í Düsseldorf, og skoðuðum gamlar kastalarústir. Að því loknu fengum við okkur gómsætar pönnukökur í Kastalabjórgarðinum.