Dís var í miklu stuði í gærkvöldi. Hún hljóp marga hringi í stofunni og var alveg óstöðvandi, þrátt fyrir að það væri komið langt fram yfir háttatíma. Ég veit ekki hvort það var svefngalsi eða sykuræsingur eftir að hafa borðað fullt af ís í eftirmat.








