Dís er farin að tala töluvert mikið, en enn sem komið er aðallega á sínu eigin tungumáli (Díslensku eða Dísku?). Það ruglar hana eflaust að við Sandra tölum ekki við hana á sama tungumálinu. Dís skilur töluvert, bæði þýsku og íslensku. Þegar hún vildi fara út á svalir um daginn sagði ég henni að hún þyrfti að fara í skó, því svalirnar voru óhreinar eftir votviðri síðustu vikna. Dís hljóp inn í forstofu og sótti skóna sína! Í fyrradag sagði Dís svo hátt og skýrt “zwei!” (tveir) þegar Sandra byrjaði að telja upp að þrem á þýsku. Það náðist á myndband.








