Archive for nóvember, 2008

Dísarmál

nóvember 29, 2008

Dís skilur vel flest það sem er sagt við hana á þýsku, íslensku og japönsku (!), en það sem hún segir sjálf er næstum alltaf á þýsku. Reyndar segir hún yfirleitt “pa-pi” frekar en “pa-pa” og stundum segir hún “mei-a” við mig þegar hún vill meira, en yfirleitt “mee” (mehr). Þegar hún vill eða sér mat segir hún “mamm!” Í dag sá hún mynd af mús í bók og ég sagði við hana “mús” nokkrum sinnum þangað til hún endurtók “mús!” hæstánægð. Ég þarf greinilega að leggja meiri vinnu í að fá hana til að tala íslensku.

Á þýsku er hún farin að raða saman orðum þótt hún kunni ekki mörg. Þegar hún sér mynd í bók af konu með barn í fanginu segir hún “mama! beibí! arm!”, semsagt “barnið er í fanginu á mömmu sinni”. Vonandi fer hún að tala meiri íslensku þegar við verðum heima á Íslandi um jólin!

Afsakið langt blogghlé

nóvember 22, 2008

Dis

Það er langt síðan ég hef nokkuð skrifað og sett inn myndir, en nú bæti ég úr því. Það er allt gott að frétta af Dísinni. Hún vex og dafnar. Nokkrar tennur hafa loksins bæst við frammtennurnar átta, augntennurnar og tveir jaxlar í hvorn góm. Hún er líka farin að tala heilmikið, leikur jafnvel heilu símtölin þótt við skiljum lítið annað en fyrsta orðið, “alla!” (halló), og það síðasta, “tuuu!” (Tschüss, bless). Þarna á milli segir hún eina eða tvær setningar, yfirleitt þær sömu, sem enginn skilur nema hún.

Dís fékk einhverja gubbupest í gær og ældi nokkrum sinnum í nótt, þannig að foreldrarnir sváfu ekki mjög mikið. Hún var hins vegar hress í morgun og með fína matarlyst. Við erum bara að vona að þetta sé ekki bráðsmitandi vírus …