Archive for janúar, 2009

Jól og áramót á Íslandi

janúar 18, 2009

Fyrstu skrefin i islenskum snjó

Við vorum á Íslandi um síðustu jól og áramót. Við komum til landsins 19. desember og allt var á kafi í snjó. Dís hafði aldrei verið neitt í snjó áður og fannst þetta mjög skrítið. Hún lagði ekki í að ganga í snjónum og kvartaði yfir að hann óhreinkaði fötin.

Krúttlegasta jólatréð

Við vorum í góðu yfirlæti hjá Ásu Dísarömmu yfir jólin. Jólatréð gerði mikla lukku. Þegar Dís hafði áttað sig á að hún ætti suma jólapakkana (flesta reyndar) og í þeim voru leikföng, nammi og fleira gott, þá var hún óstöðvandi. Hugsanlega voru þetta hennar fyrstu orð á íslensku: “Meiri pakka!”

Á öðrum í jólum fórum við til Akureyrar og vorum þar framyfir áramót. Dís var vakandi framyfir miðnætti á gamlárskvöld. Hún var um leið heilluð og dálítið smeik við flugeldana. “Búmm búmm!” sagði hún þegar hún sá flugelda springa, og svo “da-dí-da-da!”, sem þýðir sírenuvæl. Það kemur til af því að flugeldar eru á þýsku “Feuerwerk” sem hljómar næstum alveg eins og “Feuerwehr” (slökkvilið)!

Dis, Guðjón og Sunna hjá ömmu

Dís var mjög ánægð með félagsskap Sunnu og Guðjóns á Akureyri. Þeirra er sárt saknað.

Dis hjá ömmu á Íslandi

Síðustu tvo dagana vorum við hjá Ásu Dísarömmu í Reykjavík. Stóllinn/bíllinn var í miklu uppáhaldi. Þegar Dís sá þessa mynd nú í þessum rituðu orðum hrópaði hún “amma!”.

Dís í myndatöku

janúar 18, 2009

Dis

Í nóvember fór Dís í myndatöku með Jolinu frænku og Finjasi frænda. Fleiri myndir eru á Flickr (smellið á myndina eða myndaræmuna til hliðar).