Archive for mars, 2009

Tannlæknir

mars 30, 2009

Dís fór til tannlæknis í morgun. Hann leit aðeins á framtönnina sem gekk upp í góm um síðustu helgi og virtist ekki hafa miklar áhyggjur af henni. Mér sýnist tönnin líka vera orðin rétt og hafa komið aðeins niður. Svo vonum við bara að stutta framtönnin verði sem fyrst jafnlöng hinni.

Sunnudagur, blóðugur sunnudagur

mars 23, 2009

Dís klifraði upp á klósettið og datt með munninn beint á baðkarsbrúnina. Höggið var svo mikið að önnur framtönnin gekk hálf upp í góm og neðri vörin sprakk með tilheyrandi blóðbaði. Eftir dálítinn grátur og mikil ekkasog róaðist Dís fljótt og bað um að fara í rúmið sitt. Ég lagði hana í rúmið og spurði hvort hún væri með verk (ái) og hún svaraði “já”. Ég spurði hvar og hún sagði “í munninum”. Eftir smá hvíld tók Dís gleði sína á ný og fór á stjá. Hún var greinilega slegin og þreytt, og neðri vörin varð fljótt bólgin, en það var hætt að blæða og Dís virtist ekki finna mikið til.

Foreldrarnir veltu fyrir sér að fara með Dís til tannlæknis og láta líta á tennurnar, en niðurstaðan varð sú að Sandra myndi taka Dís með sér næst þegar hún fer til tannlæknis. Dísarpabbinn hafði nefnilega lent í því sjálfur sem lítill pjakkur að detta úr rólu með þeim afleiðingum að báðar framtennurnar gengu upp í góm. Þær komu niður aftur með tíð og tíma, eins og tannlæknirinn hafði þá sagt.

Dís fór að sofa á sínum venjulega tíma og vaknaði hin hressasta í morgun. Ég spurði hana hvort ég mætti kíkja upp í munninn, en hún beit fast í snuðið og hristi hausinn. Eftir smá stund tók hún síðan snuðið út úr sér, stakk fingri upp í munninn og sagði “Dís ái”. Svo opnaði hún munninn upp á gátt svo við foreldrarnir gætum séð báttið. Allar tennur voru enn á sínum stað, nema önnur framtönnin sem var greinilega nokkuð styttri en hin.

Bólusetning

mars 14, 2009

Í gær fór Dís í bólusetningu. Hún fékk tvær sprautur, eina í hvort læri, en stóð sig eins og hetja. Hún kipptist pínu til við stunguna en sat alveg róleg og kvartaði hvorki né grét. Hún var svo í ljómandi skapi allan daginn. Síðdegis brá okkur þó dálítið, því allt í einu fór Dís að ganga innskeif og næstum í hnút eins og hún væri í spreng. Hún skakklappaðist samt áfram eins og hún gat, alveg í besta skapi. Það var ekki fyrr en hún fór að þreytast sem hún kvartaði undan verk í lærunum.

Dís fór svo mjög snemma í háttinn, að eigin ósk. Reyndi meira að segja að klifra sjálf upp í rimlarúmið, yfirleitt reynir hún að klifra úr rúminu en ekki í það. Síðustu daga höfum við verið að berjast við að koma Dís í háttinn milli átta og níu á kvöldin, í gær var hún sofnuð fyrir klukkan sjö. Hún vaknaði svo í morgun brosandi og syngjandi. Foreldrunum var létt að sjá hana taka spretti um íbúðina, stökkva og stappa niður fótunum!

Hún er tveggjárídag!

mars 12, 2009

Afmæliskort!

Dís er tveggja ára í dag. Foreldrarnir taka sér frí frá vinnu og Dís frá leikskólanum. Síðdegis kemur nánasta fjölskylda í heimsókn og á laugardaginn verður barnaafmæli.

Dís byrjaði daginn, eftir að hafa sofið lengi frameftir, með því að taka upp pakka frá Ásu ömmu og Dísu frænku. Það var mikil gleði, kærar þakkir!