Dís fór til tannlæknis í morgun. Hann leit aðeins á framtönnina sem gekk upp í góm um síðustu helgi og virtist ekki hafa miklar áhyggjur af henni. Mér sýnist tönnin líka vera orðin rétt og hafa komið aðeins niður. Svo vonum við bara að stutta framtönnin verði sem fyrst jafnlöng hinni.









mars 30, 2009 kl. 10:43 pm
Það er nú gott að tannlækninum virtist þetta ekki vera neitt áhyggjuefni. Ætli tönnin rati ekki bara í rólegheitum rétta leið á sinn stað eins og hjá pabbanum forðum
mars 31, 2009 kl. 7:30 am
Við skulum vona það
apríl 8, 2009 kl. 12:44 pm
Æi, grey litla skinnið! Vona að þetta batni sem fyrst. Kveðja af Skaganum!!