Dís er farin að tala í heilum setningum og orðaforðin eykst stöðugt. Hún er nú búin að uppgötva hvernig á að spyrja einfaldra spurninga. Vinsælasta spurningin er “hvað ertu að gera?”, sem hún getur spurt í sífellu á meðan maður er að gera það sama. Næstvinsælasta spurningin er “hvað er þetta?”, en hún lætur yfirleitt nægja að spyrja einu sinni um hvern hlut.
Þótt Dís skilji vel íslensku, þá svarar hún alltaf á þýsku eða leiðréttir íslenskuna. Hún er ekki alveg farin að átta sig á því að um ólík tungumál er að ræða. Í dag vildi hún leggja sig í stofunni, svo Dísarpabbinn sótti kodda og teppi. Dís lagðist á koddann og pabbinn spurði: “Á ég að breiða teppið yfir þig?” Dís leit snöggt upp og sagði: “Nein! Nicht Teppich, Decke!” (nei, ekki teppi, ábreiða), benti svo á teppið á stofugólfinu og sagði “Das ist Teppich” (þetta er teppi). Þessu varð náttúrulega ekki mótmælt.









maí 24, 2009 kl. 5:56 pm
Það verður spennandi að fylgjast með þegar Dís fer að greina muninn á tungumálunum. – Gaman að sjá nýjar myndir
maí 27, 2009 kl. 12:30 pm
Ákveðin stelpa