Um þetta blogg

Þetta er barnablogg. Barnið heitir Lona Sophia Dís. Foreldrarnir heita Garðar og Sandra. Lona Sophia Dís er fædd 12. mars 2007 í Düsseldorf.

Dís á íslenska ættingja um allar jarðir. Hér geta þeir lesið um ævintýri og þrekraunir hennar.

4 svör to “Um þetta blogg”

  1. Hafdís Garðars segir:

    hæ hæ
    mikið er Dísin falleg… og Gústi ég er ekki frá því að hún líkist þér ..þó að það sé yfirleitt erfitt að sjá svip þegar börn eru svona ung…
    og finnst okkur þú taka þig vel út sem pabbi…
    það er gaman að heira að allt gangi nokkuð vel, þetta með tunguhaftið… þurfti ekki að klippa á það hjá ykkur Emmu? nú fer að líða að því að Ása amma hennar kíkji á hana svo að það er um að gera að þið farið að ráðleggja að fara út “barnlaus” og notfæra ykkur barnapíuna… haha annars ef að hún er svona góð að þá er kanski bara betra að taka hana með…. vonadi fáum við að sjá hana áður en langt um líður.. bestu kveðjur frá Florída
    (Haf)Dís Garðarsdóttir og kó… ég er sko búin að eigna mér nafnið….haha

  2. Ása segir:

    Hæ,
    Er búin að veltast um af hlátri yfir Dísarblogginu þínu, Gústi minn. Ég prentaði strax út fyrstu myndirnar sem þú sendir mér, geng með þær í veskinu og sýni stolt öllum sem ég kemst í tæri við. Núna tel ég dagana þangað til ég kem til ykkar og fæ að sjá Dísina og knúsa hana pínulítið. – Bless, mamma

  3. Emma segir:

    Mikið rétt þetta með tunguhaftið og ekki nóg með að við Gústi fengjum bæði slíka klippingu á unga aldri, heldur líka Sunna Rós og Guðjón Ingi. Dísin er greinilega í ættinni :-)
    kv. Emma

  4. Hafdís Garðars segir:

    Elsku Gústi minn og kó
    Mikið er gaman að fylgjast með ykkur… Ekki var Tunguhaftið frá Leifhúsarættinni(eins og Ammma´þín Freyja sagði)
    PAYBACKS!!!!!!!!!!!!!!! Ég hef svo lúmskt gaman af því að lesa “bloggið” Ég hef skipt um nokkrar bleyjurnar á þer kallinn minn…..
    En það sem að ég hef séð af Dísinni þá er hún mjög lík þér… ég myndi segja að hún væri heppin, en þá myndi líta út fyrir að mér fyndist hún óheppin ef að hún líktist Söndru.. það er ekki meint þannig.. En að vera lík Íslenska helminginum
    “How lucky can you get…hahahha” Ég segji þetta sama við strákana mína….. Allavega…
    ‘eg frétti að þið ætluð að skella ykkur til USA í sumar, mér fannst verst að þið skylduð ekki ætla ykkur til Florida…
    Við erum með svo mikið pláss því að strákarnir eru flognir, ekki nóg með það við erum með nóg af farartækjum og “free room and board” .. og gamla Lóu frænku sem að myndi passa… hugsaðu málið Gústi minn………… Þú veist að ég á svo mikið í þér og að ykkar samband er mér að “kenna” hahha mér findist frábært að fá að hafa ykkur getið þið ekki lengt fríið?????
    Besstu kveðjur frá okkur…
    Hafdís og kó
    ps það eru engir hanr hér lengur segðu konunni þinn það……


Skildu eftir svar