Archive for the 'Uncategorized'Flokkur

Bólusetning

mars 14, 2009

Í gær fór Dís í bólusetningu. Hún fékk tvær sprautur, eina í hvort læri, en stóð sig eins og hetja. Hún kipptist pínu til við stunguna en sat alveg róleg og kvartaði hvorki né grét. Hún var svo í ljómandi skapi allan daginn. Síðdegis brá okkur þó dálítið, því allt í einu fór Dís að ganga innskeif og næstum í hnút eins og hún væri í spreng. Hún skakklappaðist samt áfram eins og hún gat, alveg í besta skapi. Það var ekki fyrr en hún fór að þreytast sem hún kvartaði undan verk í lærunum.

Dís fór svo mjög snemma í háttinn, að eigin ósk. Reyndi meira að segja að klifra sjálf upp í rimlarúmið, yfirleitt reynir hún að klifra úr rúminu en ekki í það. Síðustu daga höfum við verið að berjast við að koma Dís í háttinn milli átta og níu á kvöldin, í gær var hún sofnuð fyrir klukkan sjö. Hún vaknaði svo í morgun brosandi og syngjandi. Foreldrunum var létt að sjá hana taka spretti um íbúðina, stökkva og stappa niður fótunum!

Fyrsta nóttin án foreldranna

maí 12, 2008

Við Sandra fórum á tónleika á laugardagskvöldið. Dís gisti hjá ömmu sinni og afa, en þetta er í fyrsta skiptið sem hún er yfir nótt alveg án okkar foreldranna. Dís hafði það mjög gott hjá þeim og kvartaði ekkert. Hún vaknaði um morguninn í ljómandi skapi og virtist ekki sakna okkar neitt. Við sóttum hana síðan á sunnudaginn upp úr hádegi, mjög fegin að þetta hefði tekist svona vandræðalaust, okkar allra vegna!

Gleðilega páska!

mars 23, 2008

Gaman!

Dís óskar vinum og vandamönnum nær og fjær (sérstaklega fjær) gleðilegra páska! Hér í Düsseldorf er páskahret, snjóföl í skuggum og pollurinn á svölunum er frosinn. Í dag, páskadag, er að vísu bjart og kyrrt, en síðustu daga hefur verið hvasst og gengið á með slyddu og haglélum. Við vonum að páskahretið fari með páskunum og vorið komi brátt aftur með sól og yl.