Dís óskar vinum og vandamönnum nær og fjær (sérstaklega fjær) gleðilegra páska! Hér í Düsseldorf er páskahret, snjóföl í skuggum og pollurinn á svölunum er frosinn. Í dag, páskadag, er að vísu bjart og kyrrt, en síðustu daga hefur verið hvasst og gengið á með slyddu og haglélum. Við vonum að páskahretið fari með páskunum og vorið komi brátt aftur með sól og yl.
Átvagl og sælkeri
mars 11, 2008Afsakið langt blogghlé, en ég Dísarpabbinn hef verið á ferðalagi. Dís var nokkuð lengi að ná sér af kvefinu en er nú stálslegin. Matarlystin er komin aftur og er meiri en nokkru sinni. Dís vill helst ekki neinn barnamat eða gums, heldur það sem við borðum. Hún hámar í sig brauð með smurosti í morgunmat. Í gær borðaði hún í hádegismat hjartargúllas, sem var vel kryddað með sterkum pipar frá Nígeríu, og soðnar gulrætur með. Hún vildi ekki sjá grænmetismauk úr krukku. Um daginn fengum við gesti í mat og Sandra eldaði rjómalagaða karrísúpu með suðrænum ávöxtum sem forrétt. Dís fékk að smakka og lét síðan öllum illum látum þangað til hún fékk almennilegan skammt af súpunni í skál. Stelpan er algjör sælkeri.
Dís í körfu
febrúar 24, 2008
Dís var slöpp í gær, svaf mikið og var með slæman hósta. Hún var með 38,5 stiga hita þegar við mældum hana síðdegis. Dís er hressari í dag, eins og sést í þessu vídeói sem ég tók í morgun. Hún tók upp á því sjálf að spila körfubolta!
Kvef
febrúar 22, 2008Dís hefur verið kvefuð undanfarið. Síðustu þrjár nætur hefur hún vaknað og hóstað mikið. Á daginn rennur stanslaust úr nefinu. Hún er samt full af orku og í yndislega góðu skapi, nema rétt á meðan verið er að snýta henni.
Da!
febrúar 17, 2008
Dís bendir á það sem henni finnst áhugavert eða það sem hún vill og segir “da!”
Þetta myndband var tekið í gær (laugardag 16. febrúar).
Heimsókn í leikskólann
febrúar 14, 2008Sandra fór með Dís í heimsókn í leikskólann í gær. Dís leist vel á og lék á als oddi, við höfum engar áhyggjur af því að henni líki ekki að vera þar. Krakkarnir, sem eru 1-3 ára, tóku á móti Dís með miklum fagnaðarlátum og hrópuðu: “Vei, nýtt barn! Nýtt barn!”
Í dag er Dís frekar pirruð. Hún er dálítið kvefuð og svaf lengi um miðjan daginn. Hún æðir um allt og virðist ekki vanta kraftinn, en fer að væla um leið og eitthvað er ekki eins og hún vill hafa það.
Leikskólapláss
febrúar 12, 2008Við Sandra fengum góðar fréttir í síðustu viku: Sandra fær aftur vinnuna sem hún var í áður en Dís fæddist (samningurinn rann út á meðan Sandra var í barneignarleyfi), því konan sem tók við af Söndru er búin að segja upp og yfirmaðurinn vill fá Söndru aftur. Aðalfréttin er að Dís fær pláss í leikskólanum á vinnustaðnum. Leikskólinn er lítill og mikil eftirsókn eftir lausum plássum, þannig að þetta kom okkur mjög ánægjulega á óvart.
Svo komumst við að því, okkur til enn frekari ánægju, að það er nýbúið að lækka leikskólagjöld í Hilden, þar sem vinnustaðurinn er, og þau eru þarmeð þau lægstu í allri Norðurrín-Vestfalíu. Við vorum farin að hafa nokkrar áhyggjur af leikskólamálum, því Sandra var búin að sækja um fyrir Dís á mörgum leikskólum í Düsseldorf og hvergi fengið jákvæð svör.
Dís fer í heimsókn í leikskólann á morgun, en byrjar svo í “aðlögun” í mars um leið og hún er orðin eins árs. Sandra byrjar að vinna aftur 1. apríl og þá byrjar Dís líka fyrir alvöru í leikskólanum. Til að byrja með verður hún í leikskólanum fjóra daga í viku í fimm tíma í senn. Við vonum bara að hún verði farin að ganga þá!












